2. júlí - Sjöundi og síðasti leggurinn |
|
|
Friday, 03 July 2009 |
Lagt af stað um morguninn eftir frábæra dvöl á Kings Arms hótelinu. Hitinn var notalegur um 25 gráður og skýjað.
Hjóluðu svo inn í sólina og hitann og enduðu í 29 stiga hita og sól, og hafa þau hreinlega verið að bráðna.
Gist í nótt á vegahóteli sem heitir Beach Arms, líklega dæmigert breskt, skítugt og mjög þreytt.
Þau eru þegar þetta er skrifað um 50 mílum frá mótorhjólaleigunni og fóru snemma af stað til að hafa tíma til að lenda í umferðateppum á leiðinni þangað.
Síðasta nóttin í frábætti ferð er framundan en spurningin er hvernig svefninn verður því hitinn í herberginu er um 32°.
Þau fljúga svo öll heim á morgun, Einar og Edda til Íslands og Jói og Beta til Noregs.
|
|
1. júlí 2009 - Sjötti leggur |
|
|
Wednesday, 01 July 2009 |
Þá eru ferðalangarnir búnir að klára sinn sjötta legg. Þau eru núna staðsett í Charton Horethorne.
Þar hafa þau haft það eins og á sólarströnd eins og hefur verið alla ferðina, í dag var sól og 28 stiga hiti.
Nú eru þau á leið til London og skila hjólunum á föstudags morgun.
Gaman hefur verið að sjá hvernig Jói og Beta eru að verða alvuru "Bikerar" og gengur þeim betur og betur með hjólið.
|
|
30. júní 2009 - Fimmti leggur |
|
|
Tuesday, 30 June 2009 |
Farið í stutta dagleið í dag, 85 mílur.
Skoðað strandbæi á norðurströnd Corbwall, m.a. Padstow þar sem heimskokkurinn Rich Stein rekur veitingastað og bakarí.
Endað í litlum bæ við norðurströndina sem heitir Bude um kl 14 og þar var verið í hefðbundnum túrista leik restina af deginum. Farið var á ströndina og í sjóinn og borðað frábæran Cornwalskan kráarmat.
Veðrið hefur verið eins og á sólarströnd, sól og um 30 stiga hiti.
|
Last Updated ( Wednesday, 01 July 2009 )
|
|
29. júní 2009 - Fjórði leggur |
|
|
Tuesday, 30 June 2009 |
Í dag var farið bæði á syðsta og vestasta odda breska meginlandsins. Mjög gaman eftir að hafa farið á nyrstaoddan í fyrra í Skotlandi.
Veðrið hefur verið frábært og stemmingin góð.
Eru í Penzance, bær í Cornwall um 10 mílur frá Land Ends, sem er vestasti oddinn.
|
Last Updated ( Wednesday, 01 July 2009 )
|
|
28. júní 2009 - Þriðji leggur |
|
|
Sunday, 28 June 2009 |
Þá er hópurinn búinn að fara sinn þriðja dag og voru hjólaðir um 150km þennan legginn.
Farið var í gegnum mikið skóglendi að þessu sinni og var endað á Herragarðinum Kitley House um 10 mílum austan við hafnarborgina Plymouth. Þar hafa þau það eins og höfðingjar og hafa verið að njóta góðst fasts og fljótandi fæðis að hætti heimamanna.
|
Last Updated ( Sunday, 28 June 2009 )
|
|
|
|