Loksins komnir til Japans, búnir að leysa hjólin út sem er
sólarhring fyrr en þeir bjuggust við. En merkilegt að vera á japönskum
hjólum, og hafa hjólað alla leið til Japans á þeim.
Hjóluðu
einhverja 30 km, í vinstri umferð með einni smá skekkju sem var ekki
mikið mál að leiðrétta sem betur fer. Öll skilti auðvitað á japönsku og
ekki viðlit að skilja auðvitað, og lítið um að fólk tali ensku. Þannig
að það eru erfið tjáskiptin.
Sáu mikið af Drive-In hótelum á
leiðinni og voru mikið að spá í að taka bara svoleiðis gistingu svona
fyrstu nóttina þangað til þeir áttuðu sig á því að þetta voru í raun
"hóruhús" þar sem gisting er ódýr en það sem fylgir kostar!
En fararstjóri dagsins fann lúxushótel þar sem þeir gista á í nótt.
Planið
fyrir næstu daga er að fara til Tokyo og vera komnir þangað á
fimmtudag, fara í sendiráðið og ná í pappíra og athuga með flutninginn
yfir til Alaska. Svo voru þeir komnir í samband við mótorhjólaklúbb
Cayoun (eða eitthvað svoleiðis) og kannski hitta þeir einhverja meðlimi
hans.
Það er um 25° C hiti og rakamistur í Japan og 9 tíma munur núna.
Í gær voru liðnar 7 vikur af ferðalaginu og 6 vikur eftir.
|