4. ágúst - Waynesboro Virginia |
|
|
Saturday, 04 August 2007 |
Nú er 4 klst. munur hjá þeim.
Í dag hjóluðu þeir 480 km. í um 36° C hita.
Á morgun á svo að hjóla til Washington þar sem Harley bræður skila hjólunum, alveg áreiðanlega með
trega. Þeir taka svo rútu til New York þar sem þær Ella og Jóhanna bíða þeirra, en þær flugu út í
morgun.
En Einar og Sverrir fara til New York þar sem þeirra hjól fara í flugfrakt þaðan og heim.
|
|
3. ágúst - West Virginia |
|
|
Saturday, 04 August 2007 |
Í dag hjóluðu þeir 520 km. og eru komnir til Huntington í West Virginia.
Það var óttaleg hitasvækja eins og hefur verið undanfarið, og einnig fengu þeir skúr á sig. Harley
bræður gátu prófað Harley regngallana sína og virkuðu þeir vel.
Ferðin sækist vel og ekki margir hjóladagar eftir.
|
|
2. ágúst - Evansville Indiana |
|
|
Thursday, 02 August 2007 |
Eru staddir í útjaðri Evansville í Indiana.
Hjóluðu um 620 km. í dag. Mjög heitt á leiðinni. Engin stopp nema bara rétt til þess að fá sér smá
næringu.
Minni á að það er hægt að hlusta á viðtalið við Sverri á Rás 2 á netinu ef einhver missti af því í
morgun.
|
|
1. ágúst - Springfield Missouri |
|
|
Wednesday, 01 August 2007 |
Eru komnir til Springfield Missouri og hjóluðu um 470 km. í dag.
Hringdu í Önnu frænku sína sem býr í Tulsa og var hún þá nýkomin heim úr ferðalagi. Þeir kíktu í
heimsókn og urðu fagnaðarfundir. Var spjallað í smástund en svo urðu þeir að halda áfram ferðinni.
Fylgdu route 66 eins og hægt var í hita og miklum raka.
|
|
31. júlí - Chandler Oklanoma |
|
|
Wednesday, 01 August 2007 |
Eru komnir til Chandler rétt fyrir utan Oklahoma og er núna 5 tíma munur.
Fengu sér steik í hádeginu á "The Big Texan" veitingastað. (www.bigtexan.com)
Sáu á leiðinni Cadilac Rance við Route 66.
Hitinn í dag er búinn að vera frá 24° - 35° C og fengu þeir hellidembur á leiðinni. Hjóluðu um 690 km.
Í dag eru liðnar 12 vikur og 1 dagur sem gera 85 daga og styttist óðum í heimkomu.
|
Sast uppfrt ( Wednesday, 01 August 2007 )
|
|
|
|
<< Byrjun < Nrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Eldri > Endir >>
|
Niurstur 91 - 99 af 179 |