25. maí - Fyrir austan Uralfjöll PDF Print
Friday, 25 May 2007

Enn einn góður dagur að baki. Hjóluðu 610 km í dag. Byrjuðu í grenjandi rigningu og leiðindum en svo birti þegar leið á daginn. Tóku aðalveginn í austur og enduðu á landamærunum að Kasakstan, en þangað ætluðu þeir ekki, svo þeir þurftu að hjóla ca. 100 km. til baka til að komast inn á rétta leið áfram austur Rússland.

Hittu Svisslending á BMW GS1150 hjóli sem hafði verið að hjóla hringinn einhvern tímann en þurfti að hætta vegna veikinda. En núna er hann sem sagt að klára ferðina og henni lýkur í Mongólíu. Þeir hittu hann þrisvar í dag og enduðu svo á sama hóteli.

Það sprakk tvisvar hjá Einari í dag. Hann mátti hafa sig allan við til þess að missa ekki hjólið þegar það sprakk í fyrra skiptið, en svo í seinna skiptið þá var það út af því að viðgerðin hafði ekki gengið sem skyldi.

Eru núna í borg sem heitir Ishim í frábæru veðri og mjög ánægðir með daginn

Í gær hjóluðu þeir yfir Úralfjöll, fóru í 720 m hæð.

 

Sast uppfrt ( Saturday, 26 May 2007 )
 
< Fyrri   Nst >