Ferðaáætlun |
Undirbúningur |
Útbúnaðarlisti |
Pappírar |
Styrktaraðilar |
Viðtöl |
Tenglar |
- - - - - - - |
Við erum hér |
Ferðirnar
Kringum heiminn |
Færeyjar og Skotland |
Suður Bretland |
Reykjavik - Nordkap |
Reykjavík - Gíbraltar |
Route 66 |
Alaska |
Los Angeles - Ushuaia |
Mótorhjólin |
Wednesday, 28 March 2007 | |
Hér eru upplýsingar um mótorhjólið og þá aukahluti sem hafa verið settir á hjólið: Mótorhjól: Yamaha XT 660 R 2007 www.yamaha.is Svona lítur það út þegar það kemur nýtt.
Yamaha https://www.yamaha-motor-europe.com
Þetta gler er ekki mjög hátt en brýtur þó mesta vindinn. Ég vil ekki hafa glerið of hátt þó að það brjóti vindinn betur, því þá getur það verið fyrir manni þegar þarf að standa á hjólinu í erfiðu færi.
Við notuðum upphaflega sætið en fórum með það til hans Auðuns Jónssonar bólstrara og hann breytti því fyrir okkur. Við létum hann færa setuna svolítið aftar og um leið minnka framhallann á sætinu. Einnig breikkaði hann setuna og klæddi sætið svo með góðu efni ætlað á mótorhjól.
Handhlífar: Yamaha https://www.yamaha-motor-europe.com
Michelin 4mm slöngur sem við settum strax í. Þessar eiga að vera ódrepandi og eru nánast eins og dekk inni í dekki. Töskur: www.pelican.com www.touratech.com Pelican plastöskurnar hafa reynst okkur frábærlega og eru nánast sprengiheldar. Þær þola ótrúlega mikið hnjask og högg, eru vatnsheldar og rykþéttar. Við keyptum festingar frá Touratech sem við mixuðum á þessar töskur. Það virkar mjög vel.
Innri töskur: Seglagerðin Ægir www.seglagerdin.is Þessar töskur eru sérsaumaðar fyrir okkur og eru úr níðsterkum dúk og með sterkum rennilás.
Grindur fyrir töskur: Hebco & Becker www.hepco-becker.de Þessar grindur eru frá Hebco & Becker og þurftum við aðeins að breyta þeim til að þær pössuðu með böglaberanum sem er frá Yamaha. Það er ekki mikil breyting.
Tanktaska: Off the road www.off-the-road.de Einfaldar og góðar töskur. Ég hef notað svona tösku áður og hafa þær reynst mjög vel. Hægt að stækka þær og regnplast fylgir. Auðvelt að taka töskuna af og setja á.
Sterk og góð hlífðarpanna sem þurfum að hafa. Eftir að hafa tekið upprunalega pústkerfið undan þá hækkaði töluvert undir hjólið og yamaha hlífðarpannan passaði ekki lengur.
Miðjustandari: Off the Road www.off-the-road.de Sterkur og góður miðjustandur sem er algjörlega nauðsynlegur þegar maður ferðast úr alfaraleið, því þá getur maður unnið við hjólið og tekið dekk undan og hjólið stendur áfram. Við þurftum að lengja báða standarana, þ.e. miðjustandarann og hliðarstandarann þar sem hjólin hafa hækkað það mikið.
Þessi bensíntankur er úr plasti og tekur ca 26 lítra. Það var svolítl vinna að setja hann á. Það kemur auka bensíndæla með tanknum sem dælir úr neðsta hluta tanksinns. Þessa dælu þarf að finna pláss fyrir og búa til festingar fyrir hana. Einnig þarf að tengja hana inn á vacum svo að hún virki. Svo þarf líka að færa yfirfallstankinn fyrir kælivökvann og kemur nýr tankur með. Hann er settur undir sætið þar sem lítð hólf er sem ætlað er fyrir værkfæri. Síðan þarf að sjálfsögðu að mála hann og merkja. En með þessum tank má ætla að við getum ekið ca 550 km.
Pústkerfi 2 í 1 : Off the Road www.off-the-road.de Þetta kerfi er mun betra en upphaflega pústkerfið. Bara við það að skipta um pústkerfi, léttist hjólið um 13 kg. Einnig hækkar verulega undir hjólið því að upphaglega pústkerfið liggur undir hjólið og er því lægsti punktur. Þetta var ekki mjög mikil aðgerð, en þó þurfti að færa forðabúrið fyrir afturbremsuna og einnig að breyta slöngunni fyrir öndunina inn á vélina.
Stýri: WRP Fat Bar www.nitro.is Stýrið skiptum við um einfaldlega vegna þess að upphaflega stýrið er úr járni og ef maður leggur hjólið á hliðina eða dettur, þá er alvek klárt að stýrið bognar. Þess vegna settum alvöru ál Fat Bar stýri sem er miklu sterkara.
Upphækkun á stýri: www.nitro.is Við hækkuðum stýrið um ca 3,5 cm og er hjólið miklu betra eftir það.
Hraðafestir: Þennan einfalda búnað fann ég í USA þegar ég var að þvælast í einhverri mótorhjólabúðinni í vetur. Þetta er ótrúlega einfalt og auðvelt að setja í. Það getur verið gott að geta fest bensíngjöfina til að hvíla sig pínulítið þegar um langar vegalengdir er að ræða.
Gps: Garmin Zumo 550 www.rs.is www.garmin.com Frábært tæki sérhannað fyrir mótorhjól. Vind og vatnsþétt og mjög auðveld í notkun, jafnvel þó að maður sé með hanska á sér. Tækið er með stórt minni þannig að við getum verið með öll þau kort sem við þurfum í tækinu. Það er mikill kostur.
Vatnsgeymsla: Heimatilbúið: Homemade: www.rtw.is Þetta rör settum við í plássið sem myndaðist þegar við tókum annan hjóðkútinn af hjólinu. Við sáum þarna tækifæri til þess að nýta plássið og því settum við þetta rör. Inn í þetta rör passa akkúrat 2 stk 2ja lítra Pepsi Max. Ótrúlegt en satt. Þarna getum við því sett samtals 4 lítra af vatni.
Hleðsla: Við útbjuggum og tengdum auka rafmagnsúttak og settum það í topptöskuna. Þetta er þrefalt tengi og er til þess að geta hlaðið hin ýmsu raftæki, síma, video, myndavélar ofl.
Drullusokkur: Við settum drullusokka að aftan og framan til að hlífa okkur við að blotna og verða eins skítugir þegar við hjólum í rigningu. Við keyptum einfaldlega efni hjá Efnissölunni uppi á höfða og sniðum og skrúfuðm á.
Talstöðvar: Icom www.icomamerica.com www.peltor.se www.aukaraf.is Talstöðvarnar eru frá ICOM sem Aukaraf flytur inn og hefur umboð fyrir. Þetta eru frábærar stöðvar sem leysa öll okkar samskiptamál á leiðinni kringum hnöttinn. Við þær tengjum við rofa sem festur er á stýrið og í þann rofa tengjum við svo headsettin sem eru í hjálmunum. Þetta virkar frábærlega. Headsettin eru frá Peltor og það er verslunin Dynjandi sem flytur þau inn. Þetta eru frábær sett og þola mikið hnjask og má nefna að allar björgunarsveitir á Íslandi nota þessi sett.
Hjólin fyrir og eftir: Hér sést hjólið fyrir og eftir breytingu:
|
|
Sast uppfrt ( Saturday, 05 May 2007 ) |