Ferðirnar
Kringum heiminn |
FÃĶreyjar og Skotland |
Suður Bretland |
Reykjavik - Nordkap |
ReykjavÃk - GÃbraltar |
Route 66 |
Alaska |
Los Angeles - Ushuaia |
23. maà 2013 |
![]() |
![]() |
Thursday, 23 May 2013 | |
Erum komnir til Schleswig og gistum á Ruhekrug þar sem ég gisti fyrstu næturnar í fyrra þegar Dista var á sjúkrahúsinu hérna. Það er passandi að síðasta nóttin fyrir sunnan Danmörku sé þar sem sú fyrsta var í fyrrihluta leiðangursins Reykjavík- Gíbraltar/Tarifa.
Þetta var léttur og skemmtilegur dagur, rúmir 400 km. Við hjóluðum fyrstu 300 km á hraðbrautum en síðustu rúma 100 eftir bráðskemtilegum sveitavegum. Hittum frábæra gamla konu sem var að afgreiða í "búðinni" í pínu litlu þorpi. Það kjaftaði á henni hver tuska og eftir skemmtilegt samtal, þar sem ég náði að segja ja og aha inni á milli, kom hún hlaupandi út til okkar með tvo kaffibollahanda okkur.
Veðrið hefur verið ágætt í dag, sama og engin rigning og vegirnir þurrir. Veðrið hér í Schleswig er með því besta í allri ferðinni, hálfskýjað og hitinn vel yfir 10 gráður. Þýskaland á norðurleið er að verða besti hluti ferðarinnar.
Á morgun er stefnan á Álaborg. Okkur er bæði boðið í veislu og gisting hjá Betu og Jóa annað kvöld.
![]() Sú gamla í búðinni og ég með kaffibollann ![]() Sverrir og hjólin fyrir utan spítalann í Schleswig ![]() Að lokinni góðri Jagerschnitzel máltíð á Ruhekrug, Schleswig |
|
Síðast uppfært ( Friday, 24 May 2013 ) |
< Fyrri | Næst > |
---|